Friday, November 02, 2007

Tilveran


Þessi sería Hin pólitíska (til)vera var tekin í Hafnarstrætinu, árið 2004 (og á að sýna mig í ham! hehe). Tíminn líður svo hratt. Allt það sem hefur átt sér stað í millitíðinni hefur liðið svo hratt. Fólk er að eignast börn, flytja, giftst, gera allt hitt og þetta...Hvað hefur gerst í mínu lífi frá 2004? Úff, það er svo mikið...Ég veit ekki einu sinni hvar ég ætti að byrja! Afhverju er ég að tala um það? Vegna þess að mér finnst eins og tíminn hafi hlaupið áfram. Það er komið 2007 í fyrra var 2004. Það er þess vegna. Ég man allt, allan þennan tíma en hvert hann fór...? Ég sakna hans ekki beinlínis en það er viss söknuður sem ég finn þó maður eigi ekki að horfa til baka heldur halda áfram....Það er 2008 eftir tvo mánuði, það verður yndislegt þá. Yndislegt vegna þess að það kom ný manneskja inn í líf mitt 19. júlí síðastliðinn....lítill gullmoli sem hefur breytt allri heimsmyndinni, minni. Hún er orðin 3 og hálfsmánaða og er alltaf að stækka og þroskast og er það hreinn unaður að horfa á þennan engil vaxa og uppgötva alla skapaða hluti. Hún brosir hverja stund og finnst svo gaman að vera til. Eitthvað sem ég ætla að taka mér til fyrirmyndar. Jenny Holzer sagði: "The most profound things are inexpressible". Held það bara....

4 comments:

Anonymous said...

Ég sé bara enga pólítíska tilveruseríu...hmmm...

Guðrún Ásta said...

Nei hún á það til að hverfa...er komin á sinn stað núna, held ég, vonandi

Gagga Guðmunds said...

já þarna þekki ég mína konu! Er verið að ræða fjölmiðlafrumvarpið?

Anonymous said...

Of course my horse!