
Maria Callas er ein af þeim söngkonum sem ég ólst upp við. Í gærkveldi var þáttur á RÚV um Callas og hlutverk hennar í uppfærslu Francos Zeffirelli á Toscu eftir Puccini. Tónlistin í óperunni er yndisleg. Ég var með gæsahúð allan tímann. Þátturinn byggðist upp á því að hluti af lífshlaupi hennar var skoðaður og borinn saman við Toscu, konuna sem hún var hvað frægust fyrir að túlka í samnefndri óperu.
Þetta var síðasta hlutverk hennar sem hún söng á sviði, að ég held. "Örlög Floriu Toscu enduróma í ævi Callas - “Ég hef lifað fyrir listina, ég hef lifað fyrir ást” syngur Tosca í aríunni “Vissi d’arte”:
Hér er það dramatíska atriði: www.youtube.com/watch?v=07U4d_k9IGQ - Scarpia (vondi karlinn og lögregluforingi páfaríkisins) býður Toscu að gefa sig honum á vald í skiptum fyrir líf elskhuga hennar, Cavaradossi. Hún reynir að komast undan faðmlögum Scarpia, ákallar Guð og harmar hvernig komið sé fyrir sér sem hafi helgað líf sitt ástinni og listinni ( þá syngur hún þetta: "Vissi d’arte" - linkur hér að ofan). Scarpia gerist enn ágengari en Spoletta (lögregluþjónn) truflar þau og skýrir frá því að Angelotti (vinur Cavaradossi) hafi svipt sig lífi þegar hann sá fram á að nást (pólitískur strokufangi).Tosca fellst á tilboð Scarpias til að bjarga elskhuga sínum. Scarpia þykist þá gefa skipun um að fram fari einungis sýndaraftaka á Cavaradossi sem eigi síðan að láta lausan. Scarpia er ekki fyrr búinn að skrifa lausnarskjal fyrir elskendurna en Tosca grípur hníf af borðinu og drepur hann. Hún hrifsar skjalið úr stirnandi hendi hans, setur kerti við höfuð hans, kross á brjóstið og laumast síðan út.
Í þriðja og síðasta hluta óperunnar bíður Cavaradossi aftöku í Engilsborg. Hann mútar fangaverði til að koma kveðjubréfi til Toscu. Minningin um ást þeirra streymir fram meðan hann skrifar og hann fyllist örvæntingu. Tosca kemur þjótandi inn með fréttir af nýliðnum atburðum. Cavaradossi gælir við hendurnar sem myrtu hans vegna og þau fagna framtíðinni saman. ( Hér eru sungnar ca. þrjár aríur).
Þegar aftökusveitin kemur á vettvang leiðbeinir Tosca honum hvernig hann geti leikið dauða sinn á sannfærandi hátt. Hermennirnir hleypa af skotum og fara síðan. Tosca hvetur elskhuga sinn til að flýta sér en þegar hann bærir ekki á sér áttar hún sig á svikum Scarpias sem náð hafa út yfir gröf og dauða. Þegar Spoletta kemur til að handtaka Toscu fyrir morðið á Scarpia, hrópar hún á Scarpia að mæta sér frammi fyrir Guði og varpar sér síðan fram af svölum kastalans í opinn dauðann. Lýkur þar með sögunni um ástir söngkonunnar Toscu og listmálarans Cavaradossis á viðsjálum tímum í Róm.
María Callas var konan María og leikkonan Callas. Hún lifði og dó fyrir ástina og listina. Hún var elskuð og dáð af áhorfendum sínum og kollegum. Hún var fögur en rödd hennar enn fegurri. Aðrar söngkonur fölnuðu við hlið hennar. Maðurinn sem hún elskaði allt sitt líf var Onassis, sem mér finnst ekkert hafa verið varið í. Hann giftist Jackie Kennedy, ekkju John F. Kennedy og um leið þá særir hann Callas hjartasári sem aldrei greri. Eins og kom fram í þættinum þá átti hún að hafa sagt við góðvin sinn er hann spurðist fyrir um söngferil hennar: Callas is dead....Callas dó líkt og Tosca, af ástarsorg, en hennar dauði var ekki líkamlegur heldur andlegur. Dapurleg endir á ævi þessarar skærustu stjörnu óperuheimsins.
Einhver til í að fara með mér í óperuna í París - miðinn kostar ca. 35.000 krónur, miðlungs sæti.....?

No comments:
Post a Comment