1. Klára hópverkefni, sem skila þarf á morgunn.
2. Gera skýrslu um þetta hópverkefni.
3. Skrifa ritgerð upp á 10-15 bls. fyrir 28 nóvember.
4. Skrifa ritgerð upp á 10 bls. fyrir 29. nóvember.
5. Skila heimaprófi fyrir 9. desember upp á ca. 6 bls.
4. Læra undir próf í heimspeki fyrir 12. desember.
JÓLAFRÍ
Eftir jólahreingerninguna þá mun maður aftur leggjast í bókalestur

Það eru að koma út slatti af bókum núna í jólabókaflóðinu sem ég hlakka mikið, mikið, mikið til að lesa að lesa. Eins og:
1. Óreiða á striga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur - sjálfstætt framhald Kritas - án titils. Bók sem ég kolféll fyrir þegar ég las hana er hún kom út. Númer eitt, tvö og þrjú!
2. Himnaríki og Helvíti eftir Jón Kalmann
3. Sandárbókin eftir Gyrði Elíasson
4. Ævisögu Davíðs Stefánssonar.
5. Ósagt Eyvindur Karlsson
6. Blótgælur Kristín Svava Tómasdóttir
7. Saga af bláu sumri Þórdís Björndsóttir
8. Hundshaus Moten Ramsland
9. Þúsund bjartar sólir Khaled Hosseini
10. Loftskeytamaðurinn Knut Hamsun
11. Tvíburarnir Tessa de Loo
12. Súkkulaði Joanne Harris
13. Veruleiki draumanna Ingibjörg Haraldsdóttir
14. Öskudagar Ari Jóhannesson
15. Maó
16. Og fleiri bækur sem eru að koma út............................
Maður á samt varla eftir að lesa þetta allt í einu...ho ho ho
Svo erum við að fara að skíra litlu dúlluna 1. desember. Það er allt að gerast.
Er bara að duunda mér við að blogga....á að vera að skrifa riterð um Bertrand Russell og vandamál heimspekinnar....
What is mind? No matter. What is matter? Never mind.
Over and out.

2 comments:
Skemmtileg uppþvottasería! Þú átt svo margar skemmtilegar seríur. Já mikið sem ég hlakka til að hverfa undir sæng um jólin með bækur og Makkintos.
Margar góðar myndir frá því í "gamla daga". En, sammála þessu, oh hvað ég hlakka til að detta ofaní makkintos baukinn! Það er, ef svo má segja, það eina sem maður má "detta í".... ;)
Post a Comment