Monday, March 05, 2007

...


Mig langar svo í almennilega myndavél. Ef ég ætti svona myndavél þá væri ég alltaf að taka myndir. Ég myndi hafa hana fasta, hangandi utan um hálsin á mér. Ég myndi hætta í skóla og taka bara myndir. Af trjánum, fuglunum, fólki og húsum. Djók. Ég myndi ekki hætta í skóla en ég væri alltaf að taka myndir. Myndi þá kannski jafnvel taka mynd af einhverju og setja það inn á bloggið mitt. Það er á dagskránni að kaupa svona vél. En þar sem ég er hætt að hugsa bara um sjálfa mig þá verður það að bíða í bili. Svo næst verður það stjörnusjónauki....!
Flottur!

1 comment:

Anonymous said...

Ekki vissi ég að þú værir tækjafíkill