Eftir að hafa lesið aðferðarfræði og sögu listfræði, óteljandi fræðitexta um heyrnarleysi, málvísindi, málefni útlendinga, þýðingar, bókmenntafræði, kynjafræði, trúarbrögð, heimspeki, íslenska myndlist (og fleira mætti telja upp) - þá finnst mér ÆÐI að liggja í góðum sófa með teppi og spennusögu! þ.e.a.s. áður en að maður fær allar hinar bækurnar sem maður á eftir að drekka í sig frá og með jólanótt...
Fer aftur suður á föstudaginn og á eftir að heimsækja þó nokkra: "gamla" húsið mitt, rauða húsið "mitt", kisu mína og gefa henni jólagjöf þar sem hún er í pössun, afa gamla, ömmu "löngu"...umm....já! Tel það þá vera upptalið, það sem á eftir að gera, fyrir utan það að ég á eftir að kaupa ýmsislegt...
Hvað gefur maður þeim sem á allt?
Veriði margblessuð og sssÆL!
Wednesday, December 20, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

4 comments:
Ohh happy day!
Ohh happy day!
when jesus rice. When jesus rice he was my sins away
Erna: Jæja, ert nú komin í kristilega klúbbinn?
Post a Comment