Í gegnum árin hefur það verið þannig að jólin hafa aldrei höfðað neitt sérstaklega til mín. Þegar ég var lítil þá fannst mér æðislegt að fá dót í skóinn minn, sem ég setti bara út í glugga og um morguninn var eitthvað þarna. Ég skrifað fjöldan allan af bréfum og átti ótal andvöku nætur að bíða eftir jólasveininum. En eftir að ég fann bréfin upp í eldhússkáp þá hættu jólin að hafa eins mikil áhrif. Ha ha! Það settist samt ekkert á sálin eða e-ð slíkt. En í dag finnst mér ég vera að vaxa upp úr þessu standi og finna aftur þessa "töfra" sem voru þarna einhvern tímann - þó að jólagjafirnar skipta ekki lengur máli.
Mamma, rannsa og ég tókum okkur til um daginn og bökuðum jólasmákökur fyrir hátíðirnar og er það í fyrsta skipti í.....háaherrans tíð! Ég man ekki eftir að hafa bakað síðan í heimilisfræði í gagganum, og eru það frekar mörg ár síðan. Ég var fyrir löngu búin að gleyma því hvað það getur verið gaman. En hvað um það. Þetta var æðislegt og undir spilaði Ella Fitzgerald. Þetta urðu svo alls fimm sortir og vorum við býsna ánægðar með útkomuna. Sumar urðu pínu skringilegar eða afbrigðilega stórar en allt í allt komu þær bara vel út og bragðast mjög vel! Voru þær síðan settar í voða fína jóladúnka og bíða þess nú að verða borðaðar. Ég hafði með mér einn dúnk heim sem ég setti í frysti og eru þær þar enn. Það er einn hængur á, ég borða ekki jólasmákökur. Má bjóða þér jólakaffi og smáköku/r?
Eins og allar ástíðar og allir mánuðir eiga sinn sjarma þá finnst mér desember góður. Það eru margir sem þola ekki þennan mánuð, eins og ég gerði einu sinni, með allt þetta "jóla - stress" og fleira sem fylgir þessum dimmasta mánuði ársins t.d. skammdegisþunglyndi.
Er búin að skila öllum verkefnum ... svo ég er komin í jólafrí. Núna get ég raðað mandarínum í skál fram að þorláksmessu. En ég hlakka til að hitta fólkið mitt sem er alltaf út um allt á fullu spani og eins ætla ég að njóta jólaljósanna í ár án þess að spá í hvort að ég eigi eftir að þrífa baðherbergið, því það kemur að því....
Góðar stundir.
Tuesday, December 12, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
Vona að þér hafi gengið vel í prófunum...Gekk fínt... Hafðu það gott um jólin zkan...:) Ætla að liggja á ströndinni og hlusta á Dylan og sötra jólabjór! Sjáumst á nýju ári...;)
Post a Comment