


Korka. Síðast þegar við fórum í ferðalag saman öll var (fyrir utan Goðafoss ferðina okkar sl. sunnudag) þegar við fórum í það eftirminnilega ferðalag að Ketu fyrir vestan, á Skaganum. Það var gaman. Þegar versti kaflinn á öllu vesturlandi tók við var Korka aftur í ýlfrandi og óróleg. Þannig að Raggi ákvað að láta hana hlaupa með bílnum langa leið, langt að næsta vatni sem var um 30 mín akstur. Að fylgjast með henni var eins og hún hafði gengið í "barndóm" og bros lék um andlit hennar. Þetta gat hún. Þegar búið var að velja vatn og hún vissi hvar hún gæti fundið mann hljóp hún um mela og móa, hvarf og birtist aftur, gólaði og fældi upp fugla, sem lágu á eggjum sínum í rólegheitum. Aldrei séð hana jafn fríska og glaða! Á meðan veiddi ég fisk! og svo sátum við korka á bakkanum og fylgdumst með ragga og tókum myndir af regnboganum. Það var gaman. Korka.

3 comments:
Ertu búin að vera með þessa bloggsíðu lengi?
Frábært!
Flott blogg hjá þér. Já ég sakna Korku mikið. Það eru margar góðar minningar um hana. Ekki hægt að lýsa því hvað maður misti mikið :(.
En endilega kíktu á heimasíðuna mína og kannski skrifa comment. Alltaf gaman að fá comment frá þér. :)
Post a Comment