Var að lesa áðan um ímynd íslands og hvað það er sem við hugsum um þegar við tölum um þjóðernis tákn? Og las fullt af fyndnum greinum sem fólk hefur skrifað um ísland. EN hvað er raunverulega íslenskt?
Einn þáttur í sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar er þjóðartáknið eða þau tákn sem eru valin og “við” viljum að séu tákn lands og þjóðar. Sem dæmi: þjóðhátíðardagurinn, fjallkonan, sauðkindin, fáninn, hraun, ís, eldur, víkingasverð, álfar, tröll, huldufólk og svo hin íslenska náttúra sem hefur verið stolt okkar og mótaði þjóðina og menningarvitund fólksins áður fyrr og fram til dagsins í dag. En svo hafa táknin fengið á sig ólíkar birtingarmyndir í gegnum tíðina t.d. í hinu daglega lífi og í auglýsingum og herferðum fyrirtækja.
Íslensk afurð er eitt af mörgum sérkennum landsins sem nefnd eru í sömu andrá og fjallað erum þjóðernistákn og er þjóðin stolt af sauðkindinni, sérstaklega þeirri sem lögð er á borð við hátíðlegt tækifræri. Sauðkindinn þótti verulega hallærisleg hér áður fyrr. Að ganga í lopa var ekkert töff en lopapeysan hefur í dag fengið sína uppreisn æru og er mjög mikil eftirspurn eftir henni í öllum stærðum og gerðum. Afurð sauðkindarinnar er gernýtt til ýmissa nota: lambakjötsát, lopapeysur, textílvörur, leikföng handa börnum. Þannig að búið er að færa tákn “Íslenska sauðkindin” upp á nútíma merkingu og henni svo breytt samkvæmt kröfum nútímans. Það má segja að við veljum okkur ímynd: Við neitum ekki þegar við erum borin saman við víkinga í útlenskum blöðum, heldur brosum og þenjum brjóst kassann eða sveiflum hárinu. (Hver myndi ekki hlaupa eins hratt og hann gæti ef hann sæi víking!??)
Las í fréttablaðinu í dag að hópur Íslendinga sem búsettir eru á Kanarí séu búin að stofna félag framsóknarmanna, og ætlunin er að hittast á laugardögum á Klörubar, íslenskum bar þar úti, og tala um pólitík. Um daginn höfðu þau verið í beinu símsambandi við landbúnaðarráðherra og ætlunin er að fá ráðherra út annaslagið til að halda fund með þeim. Ésús....
Svo er verið að tala um að útlendingar séu að rotta sig saman hér á landi....?
Múhahahah.

No comments:
Post a Comment