Hvað er í gangi með þessi trúartákn? Eða ný-nasistana? Það er alveg ótrúlegt hvað fólk getur verið... vitlaust....
Fjölmenningarlegt samfélag ógnar sumum því það telur að sérkenni þjóðar þeirra þurrkist út fyrir tilstilli fólks að erlendum uppruna sem flyst til landsins. En fáfræði elur af sér fordóma og sumir hræddir við það sem þeim er framandi. Til dæmis hérna á Íslandi, ég las á múrnum að menn sem börðu argentínskan ferðamann vissu ekki að hann væri ferðamaður, en héldu að þetta væri innflytjandi frá Tælandi! Það hefði þá verið allt annað fyrir þeim! Þær breytingar sem hafa orðið í heiminum á undanförnum áratugum krefjst þess að nýjar hugmyndir og annað hugarfar fylgi í kjölfarið, ekki satt!?
Með "gagnkvæmri aðlögun" eða tillitsemi er hægt að "rjúfa múrinn" sem er á milli “okkar” og “hinna”. Stór hluti þjóðarsjálfsmyndar felst í því að vera hluti af hóp, þeir sem ekki tilheyra þeim hópi eru flokkaðir sem “hinir” og endurspeglast sjálfsmyndin í því hvernig “hinir” eru skynjaðir.
Í þjóðhverfum hugsunarhætti er menning annara landa skoðuð út frá einni sögu og menningu og hinni framandi menningu ekki leyft að njóta sín á eigin forsendum. En við ferðumst til annara landa til þess að skoða aðra menningarheima og ef til vill til að bera okkar saman við aðra, en ekki er hægt að skoða menningu annar landa nema á hennar eigin forsendum – þetta gleymist mjög oft þegar fólk af erlendu bergi brotið sest hér að.
Ef Íslendingur sem kynni ekki dönsku flyttist til Danmerkur þá væri tungumálið það eina sem myndi hamla honum að taka þátt í samfélaginu og ætti hann ekki eins erfitt að læra það eins og Tælendingi. Ef sá sami flyttist til Kína til lands sem er byggt er á gjörólíkum þáttum en Ísland þá ætti hann erfiðar með það að feta sig í samfélaginu heldur en Japani. Íslendingurinn yrði þá í minnihlutahópi. Þeir sem teljast til þess er fólk sem á sér annan uppruna en þjóðin eða meirihlutinn sem ræður og á því oft erfitt uppdráttar innan samfélagsins. Það gerist þegar samfélagið kemur ekki til móts við aðra þegna sína en þeirra sem eru í meirihluta.
Afhverju ekki að leyfa því fólki sem flyst hingað að auðga landið? Gerir það það ekki? Þessi umræða um fjölmenningu ætti að vera miklu meiri. Afhverju hugsar fólk ekki um það hvernig því myndi líða ef það væri sjálft "aðskotahlutir" eða "nýbúi" - það er kannski allt of erfitt.
Sunday, October 29, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment