Þegar sólin er farin að vekja mann og fuglasöngur berst inn um gluggan til manns á morgnanna þá fer maður m.a. að fara fyrr á fætur, en maður hefur allavega ætlað sér. Vaknaði við sólina og nokkrar gæsir sem flugu syngjandi yfir húsið mitt í morgun og þar sem ég sef svo laust þá vaknaði ég við þann söng. Hún var hálf sex og ég fór fram úr og fékk mér morgunkorn og opnaði út á svalir. Það var ekki kuldi sem kom inn í herbergið mitt og læsti sig inn að beini eins og hefur verið heldur enn meiri fuglasöngur. Þannig skreið ég aftur upp í rúm og sofnaði við fuglasönginn undir hlýrri sænginni þanngað til að ég vaknaði við að byggingarverktakarnir voru farnir að bora upp úr átta. Umm....Sumarið sem er á næstu grösum.....Vorið í Reykjavík hefur samt verið furðulegt eins og borgin er, í hnotuskurn! Það snjóar og rignir á sömu stundu og svo kemur sól svo haglél...æi, þetta venjulega....Hlakka til að eyða sumrinu á Akureyrinni minni....og svo margt fleira....ekki svo langt þanngað til.
Tuesday, April 17, 2007

Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
Til hamingju með lífið!
Post a Comment