Monday, April 28, 2008

Sumarið er komið

Vika í sumarfrí og græna fingur!

Fór í próf í dag í "Málverkið í samtímanum". Ég var stressuð. Magnaði þvílíkt upp í hausnum á mér allt það versta sem hægt er að gera áður en að maður fer inn í próf!

Hugsaði: er ekki búin að lesa nógu vel og mikið, á eftir að falla og ekki ná námskeiðinu (sem er reyndar ekki möguleiki ef út í það er farið, EN...) sem leiðir til þess að ég næ ekki misserinu sem leiðir til þess að ég fæ ekki lánið mitt borgað sem leiðir til þess að ég þarf að eyða sumrinu í það að borga niður það sem ég skulda sem leiðir til þess að...ég fer í fílu! Svo myndi það líka lækka meðaleinkunina mína sem leiðir til þess að ég kemst ekki í mastersnámið mitt. Þar að auki myndi það leiða til þess að allir í kringum mig myndu smitast af fílunni í mér og ... Jamm - það hefur allt keðjuverkandi áhrif, það hefur sýnt sig.....

Reif eiginlega prófið af konunni sem gekk um og dreifði því, vandræðaðist með að opna það, þurrkaði svitann af höndunum, og fletti brussulega í gegnum prófið, skimaði og skoðaði ... Mér gekk svo glimmrandi vel og var prófið LÉTT miðað við það sem ég var búin að gera mér í hugarlund! og þá er mikið sagt.

Eftir að hafa setið allann tímann og skrifað og skrifað og skrifað, labbaði ég sátt út úr prófstofunni (og blótaði í hljóði að geta ekki fengið mér síggarettu í þessu spennufalli) og fór heim og knúsaði dótturina, sem hefur verið í öðrusæti í marga daga!

Þá er bara ein törn eftir, næsta próf 7. maí í hugmyndasögu 19. og 20. aldar, mikið mikið að lesa......

Eftir það, sumarfríííííííííííí..........

Þá er það spurningin:

HVAÐ Á AÐ GERA Í SUMAR???????????????????

Það er svo mikið á listanum.

1.-2. og 3. Aðalheiður Anna - verð í fæðingarorlofi í sumar þannig að það verður a lots of kvoletí tæm hjá mér og minni...
4. Vera í fæðingarorlofi, slaka á í SÓLINNI sem VERÐUR á AKUREYRI í SUMAR

5. Gera uppkasst af B.A. ritgerð

6. Lesa góðar bækur sem eru að rykfalla í bókahillunni og bíða þess að verða lesnar

7. Hitta allar GÖMLU GÓÐU vinkonurnar og segja þeim hvað mér þykir vænt um þær

8. Fara að veiða með fjölskyldunni

9. Vinna í garðinum

10. Fara í útileigu og sumarbústað

11. Undirbúa mig fyrir næsta vetur

12. Og aftur.....knúsast með lillunni minni.....og vera til......












13. Það er fleira á listanum.....

3 comments:

Anonymous said...

Mér sýnist á öllu að þú sért með hina fullkomnu uppskrift af góðu sumri.

Við eigum örugglega eftir að bralla eitthvað saman með krílin þar sem ég mun eyða sumrinu líka á Akureyri ... hummm kannski vegna þess að ég bý þar ;)

Æðislegar myndir af skvísunni þinni. Pant passa. =)

Hlakka til að sjá þig ... uuu hvenær er von á þér í bæinn?

kv dröfn

Anonymous said...

Hlakka til að fá þig í bæinn, við bröllum eitthvað saman!

Kv. Nínulingur

Anonymous said...

Æ, nínulingur, vildi að þú værir að koma með mér á Dylan ...!