Thursday, April 10, 2008

...

Þegar ég var ófrísk af Aðalheiði Önnu - sem er ekki svo langt síðan, ca. 9 mánuðir frá því að mín skaust út - þá gaf ég frænku hans Ragnars í afmælisgjöf þá nýútkomna plötu eftir Noruh Jones - Not too late. Ég heillaðist af plötunni, eins og svo mörgu öðru sem hún gerir ..., og fékk að skrifa hana. Ég spilaði hana nefnilega oft þegar ég var í bumbuslökun. Ég lá þá í engu nema á brjóstahaldara og brókinni og spilaði fyrir bumbuna mína. Ég tók líka ástfóstri við öðrum tónlistarmönnum/annarri tónlist eins og:

Niel Young og Harvest plötunni hans (hún hefur reyndar alltaf verið í uppáhaldi)
DVD tónleikaplötunni hans Bubba 06.06.06 - afhverju? ég veit það ekki
Öllu mögulegu með Van Morrisson
Kúbverskri tónlist - dansaði þá alveg sérstaklega með og hrissti bumbuna vel!
Klassískri tónlist - sérstaklega Chopin og píanóverkunum og Brahms og ungversku dönsunum - afhverju? ég veit það ekki.

Dramatík? Ja, maður spyr sig?

Ég bjó á Lindargötunni þá, stúdentagörðunum fyrir neðan Hverfisgötuna, með rönnsu systur og veit hún það manna best hvað það var gaman hjá okkur þegar við hækkuðum í tónlistinni okkar til að heyra t.d. ekki í nágrönnunum rífast, pólverjunum á fyllerí eða að syngja pólska drykkjusöngva, fólkinu við hliðina á okkur ríða, hávaða í biluðum ofnum eða frá byggingarvinnu og borhljóðum. Þá hækkuðuðm við oftar en ekki tónlistina og mátti þá heyrast hljóma frá íbúðinni okkar allskyns heimstónlist! :) Má deila um hver var meira pirrandi, við og tónlistin eða allt hitt pakkið?

Eftir að ég komst í sumarfrí með bumbunni minni þá tók allskyns tónlist svo aftur við....en það var alltaf eitt lag á plötunni Not too late sem ég spilaði fyrir bumbuna, Rosie´s lullaby. Í dag þegar ég hef spilað það fyrir litlu þá finnst mér eins og að hún þekki það....Það er kannski bara ímyndun. Henni finnst það þó ekki leiðilegt enda mjög fallegt lag....

No comments: