Tuesday, January 15, 2008

örlitið brot...

Janúar, þegar jólin eru afstaðin, finnst mér eins og allt þagni í smástund. Þögn, sem mér finnst liggja yfir öllu. Það sakar ekki að hafa þá snjó yfir öllu, eins og nú er. Það undirstrikar þetta ástand enn betur. Þetta er svona eins og að hafa bómull í eyrunum. Nei, það er ekki skítur inn í þeim, heyrnin er ekki sködduð eftir allar bomburnar. Þetta er eitthvað í sálinni, þessi þögn. Hún er góð.

Ekkert áramótaheit. En mér var samt hugsað til Gabriel Garcia.

Fyrir nokkrum árum? 2003?...ákvað Gabriel Garcia Marquez "að draga sig í hlé frá opinberu lífi sökum veikinda. Hann skrifaði bréf til vina sinna sem dreift var á netinu þar sem hann velti því fyrir sér hvernig hann myndi nýta tímann ef Guð gæfi aðeins örlítið meira af honum."

Þar sagði meðal annars: “Ég myndi ekki segja allt sem ég hugsa en ég myndi örugglega hugsa allt sem ég segði. Ég myndi sofa lítið en dreyma meira, ég geri mér ljóst að á hverri mínútu sem við lokum augunum missum við af sextíu sekúndum ljóss. Ég myndi ganga þegar allir hinir halda kyrru fyrir, ég myndi vakna þegar hinir svæfu.” Og síðar í bréfinu sagði hann: “Guð minn góður ef ég ætti örlítið brot af lífi. Ég myndi ekki láta dag líða án þess að segja þeim sem ég elska frá tilfinningum mínum því enginn á sér tryggan morgundag, hvorki ungur né gamall. Því skaltu ekki bíða lengur.”

Þessum manni ber ég mikla virðingu fyrir. Ég man eftir þessari grein í Morgunblaðinu þar sem sagt var frá þessu bréfi hans. Ég klippti það út eftir lesturinn svo í dag þegar ég var að vinna að verkefni kom þessi setning upp í hugann "Ó, ef ég ætti örlítið brot af lífi" Hvað myndi gerast ef allir fylgdu þessari reglu sem hann setti sér? Þakklæti fyrir að vera til og fyrir að fá að draga andann.

4 comments:

Anonymous said...

Ummmm .. einstaklega falleg lína.
Og varðandi þögnina, oft fylgir henni einstakur friður .. annað hvort fer hann fram hjá okkur eða við náum að njóta hans.

kv dröfn

Gagga Guðmunds said...

Janúar getur verið svo ansi góður þó sálin sé frekar myrk. En Janúar boðar betri tíð með blóm í haga.

Anonymous said...

janúar boðar líka byrtu sem er nauðsynleg fyrir okkar dramatísku sálir .. ekki satt

sorry Gugga ég hélt að ég hefði verið búin að koma linknum á blogginu mínu til þín

og eins og Ragnheiður sagði ... þú þarft að læra að linka á vini kona ;)
www.123.is/kant

Anonymous said...

ég er með 4 spurningar fyrir þig í næstu færslu (jebb ég er að reka á eftir þér ;))

1. Hvað kom þér mest á óvart við móðurhlutverkið?

2. Hvaða bók ertu að lesa núna?

3. Hvenær fáum við að sjá þig næst?

4. Skemmtileg staðreynd um þig sem ég vissi ekki fyrir?

Koma svo
Látum þetta rúlla svo, nú skellir þú inn 4 spurningum á bloggið hjá henni Ragnheiði og svo hún hjá mér

kv dröfn