Friday, January 25, 2008

Jææja...

Dröfnusus hér færðu útektina...

1. Hvað kom þér mest á óvart við móðurhlutverkið?

Í stuttu máli: Tilfinningin þegar ég uppgötvaði að ég væri orðin móðir og hvað þetta nýja hlutverk vandist fljótt. Meðgangan leið eins og örskotstund. Barabíng! Sú stutta kominn í heiminn. Ég las þónokkuð margar bækur á meðgöngunni sem fjölluðu um barnið og komu þess í heiminn osfv. osfv. Hverju maður ætti að búast við. Það er engan veginn hægt að lýsa þeirri tilfinningu með orðum. Ásamt mörgu mörgu öðru. Sem varla er hægt að tíunda hér.

2. Hvaða bók ertu að lesa núna?

Ahh...bara skólabækur. Í augnablikinu, Frelsið eftir John Stuart Mill og bók sem heitir One place after another og fjallar um list í almannarými, og ritgerð eftir Susan Sontag og heitir Að sjá meira. Það er bók sem ég mæli með. Annars blimskakka ég augunum á bók sem situr í bókahillunni minni og heitir Maður og Elgur og er eftir Erlend Loe og ætla að lesa þegar tími gefst.

3. Hvenær fáum við að sjá þig næst?

Við sjáumst þegar við komum norður í maí! (Barnið á sko að alast upp sem Akureyringur!;)

4. Skemmtileg staðreynd um þig sem ég vissi ekki fyrir?

Þær eru svo margar að ég get ekki valið úr þeim en kannski sú sem kemur þér minnst og mest á óvart er að þarsíðasta sumar svaf ég á milli þúfna með þaulvönum veiðimanni og hundi. Kyssti hundinn góða nótt á munninn og veiddi á flugu stærsta og fallegasta fiskinn í ferðinni. Það var ótrúlega gaman. Þannig að sú staðreynd sem þú vissir ekki um mig er að mér finnst gaman að nota fjaðrir til að drepa fiska. En mig langar ekki að vinna í frystihúsi...

7 comments:

Lc said...
This comment has been removed by a blog administrator.
Anonymous said...

Hverjar voru spurningarnar? hehe...

Guðrún Ásta said...

Ó, Þær eru reyndar í kommetakerfinu hérna í síðustufærslu....skelli þeim bara inn!

Anonymous said...

hæ skvís

veistu hvað kom mér mest á óvart með móðurhlutverkið
að ég geng í ótrúlegustu verk án nokkurs viðkvæmni og ég er komin upp úr sjálfselskunni

að þrífa upp ælu og skít án þess að blikka augunum og jafnvel kúk baði (jebb Tinna fór að svoleiðis tímabil)

og svo þetta að setja sjálfan sig í rest, studnum einum of mikið
eins og að fatta einn daginn að BÁÐAR buxurnar mans eru orðnar götóttar meðan liðið er alltaf í heilum og flottum fötum
eða borða seint um kvöld eftir að hafa nært alla aðra og svæft

og lokum hvað ég hef mikinn húmor fyrir óþekktinni þeirra, en það er best þannig til að halda geðheilsunni

jæja, heil ritgerð
nú er ég búin að svara spurningum frá Ragnheiði og við snérum hringnum við og nú er ég að hugsa upp spurningar handa Ragnheiði

kv dröfn

Guðrún Ásta said...

Hehe Já,

Að vera alveg sama...

Hafa aldrei þurft að gera annað eins áður en gera það eins og maður hafi aldrei gert annað....:)

Anonymous said...

einstaklega vel orðað

kv dröfn

Guðrún Ásta said...

Það sem þú gerir á hverjum degi Dröfn. Það er varla hægt að koma því í orð.