Þá er komin ágúst. Sumarið er tíminn söng einhver en þessi tími þegar þrestirnir fara á berjafillerí, geitungarnir verða kreisí og skólinn senn að byrja á ný, þegar laufin fara að falla af trjánum, síðasta andartak sumarblómanna, síðustu skemmtiferðaskipin kveðja, Þegar litir trjánna brenna í haustsólinni og sumarútsölurnar eru búnar. Ágúst. All seasons are bjútífúl! Þá á ég afmæli. Er á mörkum þess að vera ljón en er jú meyja. hálft ljón en meiri meyja. Þannig liggur í því.
Hætti að vinna í dag. Í dag. Á eftir að sakna Lystigarðsins. Og Akureyrar. Höfðstaðs hins bjarta norðurs. Þar sem draumar ungra elskenda rætast! Tötsí!
Tuesday, August 15, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
Til hamingju með afmælið:) -Ragnheiður.
Post a Comment