Monday, June 26, 2006

Velti mér ekki upp úr dögginni, gæti fengið kvef....lame?

Það er sagt að miklar hugsanir verða til á meðan maður gengur... Ég sneri á mér öklann á föstudaginn á leið heim úr vinnunni, hvað var ég að hugsa? - bólgnaði eins og hálviti svo að þegar ég labbaði hægðu bílarnir á sér á meðan ég labbaði oddeyrargötuna fram og til baka....alveg eins og full kl 3 að degi til - hvað segja Akureyringar þá?

Þurfti að fara upp á slysó - bara svona til þess að athuga þetta allt saman og friða sálartetrið. Ég þurfti að bíða í 1.5 klukkutíma eftir skoðun. Mætti kl. 16 en fékk ekki skoðun fyrr en hálf sex. Fékk að borga fyrir þetta alltasaman plús eitt ókeypis teygjubindi.

Gerði lítið um helgina - haltrandi - fór í kjarnaskóg og hékk þar í sólinni með nesti....Lagaði til eins og herforingi og reykti síggarettur eins og greifi....

Blygðast mín ekki.

Takk. Takk....

2 comments:

Guðrún Ásta said...

Det var knulle smukket

Ragnar Hólm Ragnarsson said...

Af hverju bloggarðu ekkert?