Wednesday, February 06, 2008

Well....

Spurningar frá Ragnheiði:

1. Hver er besta bíómynd sem þú hefur séð?
Verð að nefna nokkrar. T.d. Rauður og Blár (höfðu báðar áhrif á mig þegar ég sá þær fyrst), Big Lebowski, The shining og As good as it gets.

2. Ef þú hétir ekki Guðrún Ásta, hvaða nafn hefðirðu kosið sjálfri þér?
Umm.... veit það ekki Þórdís. Hallgerður, Gunnhildur, Þórhildur....e-ð íslenskt....e-ð fallegt, þjóðlegt, gamalt og gott.....

3. Hver er kynþokkafyllsti kvenmaður sem þú hefur augum litið og af hverju?
Fullt fullt af kynþokkafullum kvenmönnum sem maður sér á hverjum degi! En augum litið? Ef þú meinar kvenmann sem ég hef séð með berum augum veit ég ekki hvað hún heitir....En ef ég á að nefna einhverja þekkta mun það vera Birgitte Bardot – á disk með franska söngvaranum Serge Gainsbourg – Comic Strip – syngur hún með honum lag sem heitir Bonnie and Clyde – Kynbomba nr. 1. 2. 3., seyðandi rödd og flott augnaráð....

4. Hvaða hæfileika myndirðu vilja búa yfir sem þú hefur ekki?
Að geta staðið á sviði frammi fyrir hópi fólks án þess að verða feimin eða roðna. Vildi búa yfir hæfileikanum að koma fram.


Dröfn, er að hugsa.....

No comments: